FRÆÐSLA, VIÐTÖL OG GREINAR

Asa Jóhannsdóttir Asa Jóhannsdóttir

Um Áfallastreituröskun

Flest verðum við fyrir einhverjum áföllum í lífinu. Heilinn okkar vinnur sem betur fer úr þeim flestum.  

Ef tiltekin einkenni eftir áfall eru enn til staðar mánuði eftir atvikið þá getur verið að viðkomandi sé með einkenni áfallastreituröskunar.

Við áfallastreituröskun getur verið hjálplegt að fá aðstoðar fagaðila við að meta hvort svo sé og hvað sé til ráða.

Read More
Asa Jóhannsdóttir Asa Jóhannsdóttir

„Óvíst hvort fólk nái sér að fullu eftir kynferðisofbeldi“

Morgunblaðið tók viðtal við Dr. Gyðu Eyjólfsdóttur, sálfræðing og sérfræðing í klínískri sálfræði, árið 2020. Þar ræddi hún ræddi reynslu sína af áfallameðferð og EMDR-aðferðinni. Viðtalið birtist í Smartlandi Morgunblaðsins 10. júní 2020 undir fyrirsögninni „Óvíst hvort fólk nái sér að fullu eftir kynferðisofbeldi“ (Höfundur: Elínrós Líndal).

 Í viðtalinu lýsir Gyða því hvernig hún vinnur með einstaklingum sem hafa orðið fyrir áföllum, þar á meðal kynferðislegu ofbeldi, og hvernig EMDR-meðferð getur hjálpað fólki að vinna úr slíkri reynslu. Hún leggur áherslu á að fyrsta viðtalið geti verið krefjandi, en að breytingarnar sem fylgja markvissri meðferð séu mjög árangursríkar og gefandi, bæði fyrir skjólstæðinginn og meðferðaraðilann.

Read More
Fræðsla, Viðtöl, Greinar Asa Jóhannsdóttir Fræðsla, Viðtöl, Greinar Asa Jóhannsdóttir

Hvað er Partameðferð?

Í stuttu máli er partameðferðin nýtt til að auka samkennd, draga úr hræðslu og forðun gagnvart erfiðri líðan og erfiðum minningum.

Hún er nýtt til að auka þolmörk, auka skilning á áhrifum fortíðar á líðan í dag og draga úr hugrofseinkennum ef þau eru til staðar.  

Read More
Asa Jóhannsdóttir Asa Jóhannsdóttir

EMDR meðferð - Áfallaúrvinnsla

EMDR meðferð vinnur úr áföllum með allt öðrum hætti en hefðbundin viðtalsmeðferð. Segja má að áföll festist í taugakerfinu og þar séu þau frosin í minningunni. Þau áföll sem eru föst í heilanum, taugakerfinu og líkamanum hafa bein og óbein áhrif á einstaklinginn.

EMDR aðferðin notar tvíhliða áreiti (bi-lateral stimulation) eins og augnhreyfingar fram og til baka, hljóð í sitthvort eyra, létt bank sitt á hvað í lófa eða á hnén á meðan að einstaklingurinn fer í gegnum atburðinn með aðstoð EMDR meðferðaraðilans.

Read More