MASTER CLASS FYRIR MEÐFERÐARAÐILA

Masterclass er fámennt námskeið fyrir EMDR meðferðaraðila sem vilja dýpka sig í EMDR meðferð, læra af sýnikennslu, fá beina einstaklingshandleiðslu á vinnu með skjólstæðing, fá  persónulega EMDR úrvinnslu og/eða partavinnu og læra af hóphandleiðslu og umræðum. Hver dagur blandar saman sýnikennslu, umræðum, paravinnu og einstaklingshandleiðslu svo þátttakendur uppskera bæði faglega og persónulega.

Ég byggi leiðsögnina á mínum faglegum grunni og áralangri reynslu í meðhöndlun flókinna áfalla og fjölþátta vanda með þeim aðferðum sem farið verður í.

Myndir frá Íslandi - © Ljósmyndari Gyða Eyjólfsdóttir

Hvað er kennt

  • Sýnikennsla í beinni: raunveruleg dæmi, skref fyrir skref útskýringar og hvað skiptir máli á hverju augnabliki

  • Dýpri EMDR úrvinnsla: aðlögun prótókolla að flóknum málum, mismunandi prótókollar, taktikal skref og tímasetningar

  • Partavinna í sýnikennslu, ásamt útskýringum á setningum og spurningum í tengslum við tímaáttun, „non-realization“, „non-personification“, ólíkar leiðir til að nálgast parta, leiðir til að vinna með fóbíu milli parta, ýtt á þolmörk, unnið að samkennd og „co-consciousness“, ásamt fleiru.

  • Handleiðsla þar sem Gyða fylgist með vinnu þinni með skjólstæðing og kemur með tillögur og ábendingar. Handleiðsla á meðferðaráætlun. Skýrar leiðbeiningar sem  bæta vinnuna strax

  • Færni sem festist: meiri nákvæmni, meira öryggi og stöðugri árangur skjólstæðinga

  • Faglegt net: öruggur hópur reyndra EMDR meðferðaraðila sem deilir reynslu og aðferðum

Hver getur tekið þátt

  • EMDR meðferðaraðilar sem vilja dýpka úrvinnslu og partavinnu í öruggu rými

  • Fagfólk sem kann grunninn en vill skerpa á flæði, nákvæmni og klínískri ákvarðanatöku

  • Þau sem vilja bæði sjá og gera: horfa á og taka þátt í sýnikennslu, æfa í pörum og fá beina endurgjöf og handleiðslu, sem og taka þátt í umræðum

Hvað þarftu að hafa

  • Lokið EMDR grunnþjálfun (W1 og W2 með handleiðslu)

  • Reglulega beitt EMDR í klínísku starfi í a.m.k. tvö ár

  • Þekkingu á Theory of Structural Dissociation og hafa setið námskeið í partavinnu

  • Vilja til að taka þátt í paravinnu, æfa sig út frá handleiðslu, taka þátt í umræðum fá og veita uppbyggilega endurgjöf

Þátttakendur
veturinn 2024–2025
gáfu námskeiðinu 9,5/10 í heildareinkunn.

Dýpri þekking á EMDR og partavinnu

UMSAGNIR

Myndir frá Íslandi - © Ljósmyndari Gyða Eyjólfsdóttir

„Námskeiðið var frábært. Tækifærið að vera demó og vinna áfram í kjölfarið færði mig nær kjarnanum. Preverbal prótókollinn stækkaði mig mikið og handleiðslan skapaði öruggt rými til að prófa mig áfram. Demóin voru mögnuð og það var unun að sjá Gyðu vinna. Sjálfstraustið mitt hefur aukist og ég hlakka til að beita þessu í starfi.“

— Elísabet Ólöf Sigurðardóttir, sálfræðingur

• Lærdómsríkt

• Frábær sýnikennsla

• Bætir miklu við

• Ætti að vera skylda

• Ótrúlega gagnlegt

• Svo þess virði

• Einstakt tækifæri

• Lærdómsríkt • Frábær sýnikennsla • Bætir miklu við • Ætti að vera skylda • Ótrúlega gagnlegt • Svo þess virði • Einstakt tækifæri

Aukin færni í EMDR MEÐFERÐ og partavinnu

  • Þú færð dýpri skilning á EMDR meðferð og partavinnu, lærir að nota aðferðirnar af meiri nákvæmni og dýpt.

  • Handleiðslan hjálpar þér svo að tengja fræðin við raunverulega klíníska vinnu.

  • Þú byggir upp öryggi, færni og sjálfstraust, færð nýtt sjónarhorn og tækifæri til að vaxa sem fagmanneskja í öruggu og hvetjandi umhverfi.

Myndir frá Íslandi - © Ljósmyndari Gyða Eyjólfsdóttir

ALGENGAR SPURNINGAR

MasterClass UMSÖGN

„Master Class Gyðu hefur veitt mér betri innsýn í að styðja skjólstæðinga með flókinn vanda og nýta fleiri aðferðir í EMDR. Gyða er fagleg fram í fingurgóma og byggir traust með stuðningi og leiðsögn. Hópvinnan styrkir öryggi og gefur strax gagnlega endurgjöf. Námskeiðið gerir mig að betri meðferðaraðila og handleiðara.“

— Sigríður Björnsdóttir, sálfræðingur,
EMDR Europe hæfnivottaður handleiðari