Um Mig

Ég er sálfræðingur með sérfræðiréttindi í klínískri sálfræði og doktorspróf í ráðgjafarsálfræði frá The University of Texas at Austin. Frá upphafi hef ég helgað mig áfallameðferð, sálfélagslegum þáttum ófrjósemi og verkjameðferð, bæði í klínísku starfi og í kennslu, þjálfun og handleiðslu fyrir fagfólk.

Sálfræðingur og sérfræðingur í klínískri sálfræði

  • EMDR Europe og EMDRIA hæfnivottaður meðferðaraðili og handleiðari í EMDR meðferð

  • EMDR Europe og EMDR Institute viðurkenndur kennari í EMDR meðferð

  • Brautryðjandi í EMDR meðferð á Íslandi

Ég var meðal þeirra fyrstu sem innleiddu EMDR meðferð á Íslandi og hef í gegnum árin byggt upp nám og faglegt samfélag í kringum EMDR meðferð hér á landi.

Ég er hæfnivottaður EMDR meðferðaraðili og EMDR handleiðari hjá EMDR Europe og EMDRIA. Ég er einnig með kennararéttindi í EMDR meðferð í gegnum EMDR Europe og EMDR Institute og býð meðferðaraðilum upp á þjálfun í EMDR meðferð.

Símenntun og fagleg þjálfun
Í gegnum árin hef ég helgað mig áfallameðferð, bæði í klínísku starfi og í kennslu, þjálfun og handleiðslu fyrir fagfólk. Heildarþjálfun og endurmenntun mín á mínum sérsviðum spannar yfir meira en 100 námskeið og ráðstefnur frá árinu 2004 til dagsins í dag.

Áherslur í starfi
Eftir áralanga og fjölbreytta vinnu við einstaklingsmeðferð, handleiðslu og hópavinnu hef ég snúið mér að því að bjóða einungis uppá þéttar meðferðalotur fyrir einstaklinga ásamt því að styrkja EMDR námið enn frekar á Íslandi. Ég býð einnig uppá sérhæft Master class námskeið fyrir EMDR meðferðaraðila auk annara námskeiða.

„Gyða er skýr og markviss leiðbeinandi, vel skipulögð og auðvelt er að fylgja kennslunni. Þekking hennar á EMDR og áfallameðferð er djúp og traust. Hún er einstaklega næm á hópinn, fylgist vel með hvernig hverjum og einum líður og tryggir að allir fái þá athygli sem þeir þurfa.”

- Edda Arndal, hjúkrunarfræðingur og sálfræðimeðferðaraðili.

Ferilskráin mín - stutt yfirlit

Menntun og rannsóknir

  • Ph.D. í ráðgjafarsálfræði, The University of Texas at Austin (1996–2004)

    • Doktorsritgerð: Psychosocial Aspects and Functional Analysis of Symptom-giving Pelvic Girdle Relaxation in Icelandic Women

    • Miðaði að því að skoða muninn á konum sem fá grindarlos á meðgöngu og þeim sem fá ekki grindarlos á meðgöngu. Breyturnar sem ég skoðaði voru m.a. félagslegir þættir, heilsufar, tilfinningar, áfallasaga o.fl. Þær spáðu fyrir með ríflega 70% nákvæmni um hvaða konur fá grindarlos á meðgöngu.

    • Lokaverkefni í öldrunarfræðum sem hluti af „Portfolio Program in Gerontology“. Stuðningshópar fyrir aðstandendur Alzheimer sjúklinga.

  • BA í sálfræði, Háskóli Íslands (1991–1994)

    • BA-ritgerð: Þýðing og forprófun á persónuleikaprófinu NEO PI-R

  • Sérfræðiréttindi í klínískri sálfræði (2017)

    • Fjöldi viðbótarnámskeiða á sviði geðheilsu, áfallameðferðar, ófrjósemi og langvarandi verkja

Starfsreynsla

  • Sjálfstætt starfandi sálfræðingur á Íslandi (2005–)

    • Meðferð fullorðinna með flókinn vanda, sérstaklega áfallasögu, og hugrofsvanda. Langvarandi verkir og ófrjósemi. Námskeið fyrir fagaðila og almenning.

    • Byggði upp EMDR stofuna sem sérhæfðan vettvang fyrir áfallameðferð

    • Meðstofnandi og eigandi Sálfræðingar Höfðabakka (2013–2017)

    • Handleiðsla fagfólks, rekstur og þróun teymis

  • Postdoctoral Fellowship í klínískri sálfræði, Scott & White Clinic, Texas (2004–2005)

    • Starf í þverfaglegu teymi með læknum og öðrum sérfræðingum

    • Meðferð við sálrænum kvillum, verkjum, fíkn og sambandsvanda

  • Internship (verknám), Southern Mississippi Psychology Consortium (2003–2004)

    • Vinna með fullorðnum, börnum og fjölskyldum í þremur ólíkum meðferðarstofnunum

    • Meðferð, greiningar og hópvinna í samstarfi við geðdeildir, heilsugæslu og skólakerfi

Sérhæfing og þjálfun

EMDR meðferð og kennsla

  • Lokið EMDR grunnþjálfun árið 2005

  • Vottuð sem EMDR-meðferðaraðili (EMDRIA, 2007, EMDR Europe 2019)

  • Vottuð sem EMDR-handleiðari (EMDRIA, 2013, EMDR Europe 2019)

  • Kennari í EMDR meðferð með vottun frá EMDR Europe (2025) og EMDR Institute (2024)

  • Aðstoðarkennari hjá EMDR Institute (frá 2013)

  • Stýri EMDR æfingabúðum, Master Class námskeiðum og framhaldsþjálfun fyrir fagfólk

  • Hef kennt og handleitt bæði á Íslandi og erlendis

Viðbótarþjálfun og námskeið (valin dæmi)

  • Theory of Structural Dissociation & EMDR

  • Working with Parts in Trauma Therapy

  • Complex Trauma and EMDR – Roger Solomon, Kathleen Martin o.fl.

  • Utilization of EMDR with Traumatic Bereavement

  • Deep Brain Reorienting, I, II og III

  • Deepening into DBR Practicum Series

  • EMDR and Chronic Pain

  • Brainspotting Phases 1 & 2

  • Compassion Focused Therapy

  • ACT (Acceptance and Commitment Therapy) og verkjameðferð

  • Gottman Couple Therapy Level 1

  • EMDR Beyond PTSD: Attachment and Trauma

  • EMDR and Addiction Protocol

  • Clinical Hypnosis – Basic & Intermediate

  • Regluleg þátttaka í EMDRIA og EMDR Europe ráðstefnum (2008–2024)

Heildarþjálfun og endurmenntun spannar yfir 100 námskeið, ráðstefnur og sérhæfingarstundir frá árinu 2004 til dagsins í dag.

Fræðsla og útgáfa

  • Haldið fjölda námskeiða og fyrirlestra, m.a. um:

    • Flókin áföll og EMDR meðferð

    • Tilfinningahliðar ófrjósemi

    • Glasameðferðir og gjafafrumur

    • Ófrjósemi og endómetríósu

    • Grindargliðnun og líkamleg einkenni á meðgöngu

    • Streitu og áföll í tengslum við heilsufar og sjálfsmynd

  • Útgáfur (valið):

    • The IVF Coaching App (meðhöfundur)

    • Tilfinningahliðar ófrjósemi – DVD fyrirlestur

    • Djúpslökun – geisladiskur með Andrési Ragnarssyni sálfræðingi

    • Fræðigreinar í Tímariti hjúkrunarfræðinga, Uppeldi o.fl.

    • Veggspjöld á alþjóðlegum ráðstefnum

Félagsaðild og trúnaðarstörf

  • Stofnandi og formaður EMDR á Íslandi (2018-2022)

  • Sat í siðanefnd Sálfræðingafélags Íslands (2006–2009)

  • Fyrrverandi formaður fræðslunefndar Félags sjálfstætt starfandi sálfræðinga

  • Sá um Stuðningsnet Krafts (2007 - 2012) og þjálfaði stuðningsfulltrúa

  • Svaraði fyrirspurnum og sá um símaráðgjöf Tilveru samtaka um ófrjósemi (2005-2019)

  • Aðild að:

    • EMDRIA

    • EMDR Europe

    • ISSTD

    • Sálfræðingafélagi Íslands

    • Félagi sjálfstætt starfandi sálfræðinga

    • Félagi sérfræðinga í klínískri sálfræði

    • Deep Brain Reorienting