hNITMIÐAÐAR MEÐFERÐARLOTUR

Ég býð uppá nýjan möguleika í meðferð á Íslandi sem hefur verið að skila mjög góðum árangri. Þetta eru þéttar meðferðarlotur (e. therapy intensives) sem er meðferðarform sem hefur rutt sér til rúms víða erlendis.

Í stað þess að hittast í hefðbundnum stökum viðtölum viku- eða mánaðarlega er unnið markvisst og djúpt í fleiri tíma í senn í einn til fimm daga. Þessi aðferð hentar þeim sem vilja sjá árangur á styttri tíma, fara dýpra og vilja nýta tímann vel.

Nýr möguleiki í meðferð

Myndir frá Íslandi - © Ljósmyndari Gyða Eyjólfsdóttir

Fyrir þau sem vilja fara á dýptina og uppskera skjótan og öruggan árangur í vinnu með áföll eða annan sálrænan vanda.

Fyrir mörg skiptir máli að komast hratt og örugglega að kjarna vandans, hvort sem það er vegna flókinnar áfallasögu, mikils kvíða, vanlíðunar eða mikilvægra tímamóta í lífinu.

Allt að fimm heilir dagar í röð

Þéttar lotur bjóða upp á öruggt rými og samhengi þar sem hægt er að vinna djúpt, í samfelldri og styðjandi umgjörð. Þær henta einnig vel þeim sem eiga erfitt með að komast reglulega í vikuleg viðtöl, til dæmis vegna vinnu eða búsetu. Þannig er hægt að nýta tíma og ferðir betur.

Þetta getur minnkað heildarkostnað við sálfræðimeðferð fyrir þau sem þurfa að ferðast til að komast í viðtöl.

Það er fágæt og í raun mögnuð lífsreynsla að upplifa og samþætta áfall sem hefur verið rækilega bælt, jafnvel langa ævi. Gyða Eyjólfsdóttir býr að það góðum kostum sem manneskja og sálfræðingur að maður treystir henni fullkomlega fyrir sjálfum sér. Og DBR er máttug sálfræðimeðferð sem Gyða þekkir vel og beitir af kunnáttu, innsæi og samkennd. Meðferð sem maður getur farið í hvenær sem er ævinnar. Það er aldrei of seint!

- Sigurður, 79 ára, 2 mánuðum eftir
3ja daga DBR meðferðarlotu

Samþætt meðferð
í einni lotu

Myndir frá Íslandi - © Ljósmyndari Gyða Eyjólfsdóttir
Þétt meðferðarlota er ekki skyndilausn. Hún er samþætt og örugg aðferð til að umbreyta því sem situr fast.
— Dr. Gyða Eyjólfsdóttir

Fyrir þau sem vilja vinna úr áföllum og skapa raunverulegar breytingar á skemmri tíma

Hvað eru þéttar meðferðarlotur og hvernig virka þær?

Þéttar meðferðarlotur eru samþætt og markviss meðferðar þar sem unnið er djúpt og einbeitt yfir stuttan tíma. Í stað þess að hittast í 1 tíma viku eða mánaðarlega er unnið í 3 til 5 tíma í einu yfir einn dag eða nokkra daga í senn. Þessi nálgun hentar sérstaklega vel þegar þörf er á að fara hraðar í gegnum meðferðina, þegar lífsatburðir krefjast skjótari viðbragða eða þegar hefðbundin meðferð hefur ekki dugað.

Hentar þétt lota betur en hefðbundin meðferð?

Það fer bæði eftir einstaklingnum og þeim vanda sem glímt er við. Regluleg meðferð í einn tíma með nokkurra vikna millibili er vel til þess fallin að styðja stöðugan vöxt, en stundum þarf einfaldlega meira tíma og rými til að fara vel í gegnum hlutina. Í þéttum lotum næst dýpri samfella, minni truflun og hraðari úrvinnsla. Fyrir suma geta nokkrir dagar í þéttri lotu jafnast á við mánuði eða jafnvel ár í hefðbundinni meðferð.

Hvernig er ferlið?

Ferlið hefst á könnunarsímtali þar sem skoðað er hvort að meðferðin henti. Næsta skref er undirbúningsviðtal þar sem farið er yfir markmið, sögu og óskir skjólstæðingsins. Síðan er sett upp skýr áætlun um innihald lotunnar: hvenær hún fer fram, hversu löng hún verður og hvaða aðferðir verða notaðar. Eftir lotuna er bókað eftirfylgdarviðtal um það bil 2-4 vikum síðar.

Hvernig fara þéttar meðferðarlotur fram?

Sjálf lotan samanstendur af lengri meðferðartíma, yfirleitt 3 til 6 klukkustundir á dag en þó með hléum. Meðferðin felur í sér mismunandi aðferðir eins og EMDR, partavinnu, DBR, HAM eða önnur viðeigandi úrræði. Í lokin er farið yfir stöðuna, árangur og hvaða eftirfylgd hentar. Öll nálgun er einstaklingsbundin og sértæk.  

SamanburðUR

Þétt meðferðarlota Hefðbundin meðferð
Lengri tímar í einu yfir fáa daga 50 mínútna viðtöl viku- eða mánaðarlega
Samfella og dýpt í meðferð Rof eða bið á milli tíma
Hraðari árangur á styttri tíma Árangur yfir lengri tíma
Gott fyrir tímamót eða stöðnun Gott fyrir jafna meðferð yfir langan tíma
Allur tíminn fer í meðferð 20 mín í opna og loka og 30 í meðferð
Færri tímar til að ná árangri Fleiri tímar til að ná sama árangri
Allt að 5 dagar í frí úr vinnu Mun meira frí úr vinnu sem safnast saman (viðtöl og ferðir)

Meðferð
FYRIR einstaklinga

Myndir frá Íslandi - © Ljósmyndari Gyða Eyjólfsdóttir

Djúp, samfelld vinna sem skilar árangri

Þéttar meðferðarlotur eru fyrir fólk sem er tilbúið að mæta sjálfu sér af einlægni og vinna djúpt í því sem skiptir máli. Ef þú ert á þeim stað í lífinu að þú vilt komast áfram, losa um það sem heldur aftur af þér og byggja upp nýjan styrk þá getur þessi leið hentað þér vel.

Kostnaður
Styðsta meðferðarlotan sem er í boði er þrír samfelldir tímar og kostar 105.000 kr. Stutt lota hentar fyrir einföld áföll og litla áfallasögu.

Lengsta er 5 samfelldir tímar á dag í 5 daga og kostar 875.000 kr. Þar fer fram heils árs meðferðarvinna á einni viku.

Helmingur er greiddur við bókun á meðferðarlotunni og helmingur viku fyrir upphaf lotunnar.

Lengri lota hentar fólki sem:

  • hefur upplifað áföll af ýmsum gerðum til langs eða skamms tíma.

  • glímir við langvarandi eða flókna vanlíðan

  • treystir sér ekki til að opna sig um áföll sín og þurfa að loka öllu aftur á 50 mínútum

  • hefur upplifað óstöðugleika eftir hefðbundin viðtöl

  • hefur reynt hefðbundna meðferð en upplifir sig fast eða staðnað

  • stendur á tímamótum og vill fá skýra sýn og fókus fyrir framhaldið

  • vill vinna með sín mál í öruggu umhverfi innan skýrs ramma

  • vill nýta tímann vel vegna anna, búsetu eða ferðalaga

  • hefur tök á að leggja út fyrir hárri upphæð í upphafi

Taktu fyrsta skrefið og hafðu samband

Ég legg áherslu á hlýlegt, faglegt og öruggt rými til umbreytinga. Þú getur bókað símtal til að kanna hvort meðferðarlota sé rétt skref fyrir þig. Við förum yfir það saman og ég met það með þér hvort að þetta henti þér. Ef það er niðurstaðan bókum við undirbúningsviðtal. Svona símtal kostar 20.000 kr.

Áfallameðferð sem skilar árangri

Meðferðarlotur eru skjótvirk og öflug leið til að vinna með afmörkuð áföll eða fastar tilfinningar.
Þú færð allt að fimm heila daga í röð með sérfræðingi og árangur sem getur oft jafnast á við margra mánaða meðferð.

Algengar spurningar

  • Í hefðbundinni meðferð er unnið í einn tíma (50 mínútur) í senn, yfirleitt á viku eða nokkurra vikna fresti. Þétt meðferðarlota felur í sér lengri tíma í hvert skipti, 3-6 klst og samfellu yfir 1–5 daga. Þetta hentar þegar viðfangsefnið kallar á dýpri vinnu eða þegar mikilvægt er að komast hratt í gegnum meðferðarskref eða viðkomandi þarf meira öryggi og tíma til að opna sig um erfið áföll.

  • Já, það er lykilatriði að vinna innan öruggs og faglegs ramma. Undirbúningur, flæði og eftirfylgni eru mikilvægir hlutar þess að tryggja að lotan sé bæði árangursrík og örugg.

  • Kostnaður fer eftir lengd og umfangi lotunnar. Þótt fjárfestingin sé töluverð er mikilvægt að hafa í huga að þétt lota getur stytt meðferðartímann umtalsvert og dregið úr heildarkostnaði til lengri tíma. Í hefðbundnum viðtölum er greitt fyrir 50 mínútur af klukkustundinni en í meðferðarlotu er greitt fyrir 60 mínútur af klukkustundinni. Því er tímagjaldið í meðferðarlotu hærra eða 35.000 kr.

    Styðsta meðferðarlotan sem er í boði er þrír samfelldir tímar og kostar 105.000 kr. Lengsta er 5 samfelldir tímar á dag í 5 daga og kostar 875.000 kr. Þar fer fram heils árs meðferðarvinna á einni viku. Helmingur er greiddur við bókun á meðferðarlotunni og helmingur viku fyrir upphaf lotunnar.

    Könnunarsímtal er allt að 30 mínútur og kostar 20.000 kr.

  • Ekki endilega. Þétt lota hentar best þeim sem eru tilbúnir til að leggja tíma og orku í samfellda vinnu. Í undirbúningsviðtali er metið hvort þessi aðferð henti hverjum og einum.

  • Ekki er boðið upp á áframhaldandi meðferð en sé viðkomandi ekki með annan meðferðaraðila er í boði að finna meðferðaraðila með viðkomandi. Sumir velja að koma aftur í meðferðarlotu eftir einhvern tíma.  

  • Já, í lok lotu færðu með þér skýra yfirsýn yfir þá vinnu sem þú laukst og árangur hennar, ásamt tillögu að næstu skrefum. Eftirfylgdartími er 2-4 vikum eftir meðferðarlotuna og í honum er farið yfir árangur meðferðarinnar, niðurstöður mælinga fyrir og eftir lotuna eru bornar saman til að meta árangur.