EMDR ÞJÁLFUN

Sem hæfnivottaður EMDR kennari býð ég uppá faglega þjálfun í EMDR fyrir sálfræðinga og annað sérmenntað fagfólk í geðheilbrigðisþjónustu. Til að ljúka grunnþjálfun í EMDR meðferð þurfa þátttakendur að ljúka tveimur námskeiðum og tíu tímum í handleiðslu. Nánari lýsing á  fyrri hluta grunnþjálfunar í EMDR meðferð (Weekend 1) og seinni hluta grunnþjálfunar í EMDR meðferð (Weekend 2) er hér á síðunni.

EMDR Europe Association training accreditation badge with a logo featuring a stylized eye and DNA strand, and text indicating EMDR Europe accreditation.

Næsta nÁMSKEIÐ

EMDR 1 grunnþjálfun

Gyða Eyjólfsdóttir, Phd. klínískur sálfræðingur heldur námskeið í EMDR áfallameðferð

22-24 október 2026

Skráning er hafin á næstu þjálfun í EMDR meðferð sem verður haldin dagana 22. til 24. október næstkomandi í húsnæði Hjálpræðishersins, Suðurlandsbraut 76, 108 Reykjavík.

Allar upplýsingar varðandi námskeiðið eru hér á síðunni þar með talið skilyrði sem þátttakendur þurfa að uppfylla.

EMDR 1 GRUNNþjálfun

Fyrri hluti grunnþjálfunar í EMDR meðferð (Weekend 1)

Námskeiðið veitir traustan fræðilegan grunn og verklega þjálfun í beitingu EMDR meðferðar, sem er gagnreynd meðferð við áfallatengdum vanda.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á öruggan ramma, skýra nálgun og raunhæfa yfirfærslu í klínískt starf. Þátttakendur læra 8 þrepa verklag EMDR meðferðar, æfa aðferðina í litlum  hópum undir handleiðslu kennara og aðstoðarkennara, auk þess að fá þjálfun til að hefja notkun meðferðarinnar með skjólstæðingum.

Námskeiðið felur meðal annars í sér:

  • Þriggja daga staðlotu með fyrirlestrum, sýnikennslu, myndböndum og verklegum æfingum

  • Kynningu á kenningarlegum grunni EMDR meðferðar og 8 þrepa verklagi EMDR meðferðar

  • Önnur nálgun á sögu skjólstæðings og meðferðaráætlun

  • Æfingar í litlum hópum undir minni handleiðslu eða aðstoðarkennara

  • Vandað kennsluefni, handbók EMDR Institute og vinnublöð þýdd af mér

Myndir frá Íslandi - © Ljósmyndari Gyða Eyjólfsdóttir

EMDR 2 framhaldsþjálfun

Myndir frá Íslandi - © Ljósmyndari Gyða Eyjólfsdóttir

Seinni hluti grunnþjálfunar í EMDR meðferð (Weekend 2)

Færni  til að vinna með flóknari mál

Seinni hluti grunnþjálfunar í EMDR meðferð (Weekend 2) er eingöngu fyrir þau sem hafa lokið fyrri hluta grunnþjálfunar og 5 tímum af handleiðslu milli námskeiðanna. Áhersla er lögð á dýpri færni, aðlögun EMDR meðferðar að flóknari vanda og áframhaldandi faglega þróun.

Námskeiðið miðar að því að styðja þátttakendur við að beita aðferðinni í flóknari tilvikum, þ.m.t. langvarandi áföll, endurtekin áföll og brotakenndar minningar.

Námskeiðið felur í sér:

  • Dýpkun á notkun EMDR meðferðar við flóknari vanda

  • Verklegar æfingar með í litlum hóp

  • Fleiri verkfæri til að nota þegar EMDR úrvinnsla er föst

  • Fræðslu um hugrof

  • EMDR meðferð í tengslum við sorg, ofsakvíða, þunglyndi, pararáðgjöf og fleira

  • Persónulega handleiðslu og faglega leiðsögn frá Gyðu og öðrum aðstoðarkennurum