Umsókn um EMDR Grunnþjálfun

Vinsamlegast fylltu út umsóknarformið hér að neðan og settu inn þau gögn sem krafist er. Til að sækja um þátttöku í EMDR grunnþjálfun þarf að uppfylla ákveðnar forkröfur varðandi menntun, starfsreynslu og faglega aðild samkvæmt leiðbeiningum EMDR Ísland.

1. Almennar kröfur

  • Afrit af löggildingu sem meðferðaraðili á geðheilbrigðissviði

  • Staðfesting á að tilheyra fagfélagi með skilgreindar siðareglur

  • Afrit af prófskírteini - a.m.k. meistaragráða á geðheilbrigðissviði

2. Þjálfun og menntun

  • Staðfesting á þjálfun/námskeiði sem hluta af námi á meistarastigi í geðgreiningum (t.d. listi yfir lokin námskeið og afrit af námskeiðslýsingu).

  • Staðfesting á þjálfun/námskeiði sem hluta af námi á meistarastigi í viðurkenndrimeðferðarnálgun í sálrænni meðferð (t.d. listi yfir lokin námskeið og afrit af námskeiðslýsingu).

3. Starfsreynsla og handleiðsla

  • Staðfesting á að lágmarki tveggja ára starfsreynslu við sálræna meðferð að námi loknu.

  • Staðfesting á að minnsta kosti 20 handleiðslutímum á veitta sálræna meðferð að námi loknu, þar af þurfa að minnsta kosti 10 að vera einstaklingshandleiðsla.