HANDBÓK UM BATA EFTIR ÁFÖLL
FYRIR ÞOLENDUR ÁFALLA
Þessi stutta en yfirgripsmikla handbók er góður stuðningur við þolendur áfALLA.
Um Handbók um bata eftir áföll
Bókin sem er eftir Rachel Walker, LMFT, sálmeðferðarfræðing er þýdd af dr. Gyðu Eyjólfsdóttur, sérfræðingi í klínískri sálfræði.
Þessi netta, myndskreytta 48 blaðsíðna handbók er hönnuð fyrir alla þá sem lent hafa í áföllum og langar til að fræðast um áfallalíðan (tilfinningar, hugsanir og líkamleg einkenni sem eru afleiðing af áföllum), inngrip og fá upplýsingar um frekara lesefni.
Bókin er full af upplýsingum um áföll, áfallalíðan, geðtengsl og tengslaáföll. Einnig eru upplýsingar um bjargráð sem lesendur geta skoðað og beitt. Einnig eru kenndar einfaldar æfingar til að bregðast við kveikjum á áfallalíðan og koma á stöðugleika þegar áfallaeinkenna verður vart.
Bókin er fallega myndskreytt með einföldum myndum sem útskýra flókin hugtök á einfaldan hátt. Myndirnar eru skýrar og grípandi og lesandinn á auðvelt með að tengja við þær. Handbókin inniheldur lista yfir bækur sem mælt er með fyrir þolendur áfalla.
Einnig er listi yfir myndbönd og vefsíður sem áfallasérfræðingar mæla með fyrir þolendur áfalla.
Bókin talar jafnt til þolenda áfalla sem og meðferðaraðila.
Bókin kostar 5.500 krónur.
Það eru til nokkur eintök á ensku, verðið á þeim er 3.500 kr.
Efnisyfirlit
Tékklisti fyrir áfallaeinkenni og áfallasögu
Hvað felur það í sér að ná bata eftir áföll?
Þolmörkin
Ósjálfráðu varnarviðbrögðin
Áfallaminningin („Endurupplifunin”)
Geðtengsl [Attachment]
Tengslaáföll
Forðun (frábær aðferð til að lifa af)
Skoða (ný aðferð)
Hvað skal gera:
Kortlagning
Hlúð að
Munurinn á ró og dofa
Höfundur bókarinnar, Rachel Walker, hefur gefið út frekara efni fyrir þolendur og meðferðaraðila sem sjá má inni á heimasíðu hennar Trauma Recovery Store
Panta Handbók fyrir þolendur
Með því að fylla út formið hér að neðan ertu að festa þér kaup á: Handbók um bata eftir áföll – Fyrir þolendur áfalla.
Verð bókar kr. 5.500 og sendingarkostnaður er kr. 1000.
Þú færð reikning í heimabanka og kaup verða send þegar reikningur er greiddur.