Bati eftir áföll.
Leiðarvísir fyrir meðferðaraðila.

Flettirit þetta er sérstaklega ætlað meðferðaraðilum á geðheilbrigðissviði sem starfa með skjólstæðinga sem lent hafa í áföllum.

Um Bati eftir áföll. Leiðarvísir fyrir meðferðaraðila.

Ritið er eftir Rachel Walker, LMFT, sálmeðferðarfræðing og er þýtt af dr. Gyðu Eyjólfsdóttur, sérfræðingi í klínískri sálfræði.

Ritið er hannað til að aðstoða meðferðaraðila á geðheilbrigðissviði til að veita nauðsynlegar upplýsingar um líðan tengda áföllum og afleiðingar áfalla til þolenda.

Ritið er prentað í stóru broti svo hægt sé að halda á því í kjöltunni og þannig er auðvelt fyrir skjólstæðinginn að sjá á það þegar farið er yfir efni hverrar síðu.

Í ritinu er að finna almennar upplýsingar um áfallalíðan (tilfinningar, hugsanir og líkamleg einkenni sem eru afleiðing af áföllum). Flettiritið er myndskreytt með einföldum myndum sem útskýra flókin hugtök á einfaldan hátt. Myndirnar eru skýrar og grípandi og skjólstæðingar eiga auðvelt með að tengja við þær.

Upplýsingarnar og fræðslan í ritinu geta haft öflug áhrif á heila sem er undir áhrifum af áföllum. Fræðslan ein og sér er inngrip, en til viðbótar má finna ýmiskonar inngrip til að nota í meðferð. Mælt er með að hafa fræðsluna sem hluta af meðferðaráætlun og endurskoða áætlunina reglulega.

Meðferðaraðilar hafa verið mjög ánægðir með þessa viðbót í verkfærakistuna sína og margir skjólstæðingar sem eru þolendur áfalla veita þá endurgjöf að út frá fræðslunni skilji þeir sig í fyrsta sinn, og sýna sjálfum sér mun meiri samkennd og skilning en áður.

Einnig er hægt að panta Handbók um bata eftir áföll fyrir þolendur áfalla.

Meðferðaraðilar geta vísað skjólstæðingum sínum á að kaupa hana, eða keypt nokkur eintök sjálfir til að selja sínum skjólstæðingum. Hægt er að hafa samband við mig beint á netfangið gyda@gydaeyjolfs.is séu meðferðaraðilar með spurningar varðandi pantanir.

Bati eftir áföll. Leiðarvísir fyrir meðferðaraðila.

Flettiritið kostar 18.500 krónur. 

Handbókin 5.500 krónur á íslensku og 3.500 krónur á ensku.

Efnisyfirlit

  • Sérstakar þakkir

  • Skilaboð frá höfundinum

  • Notkunarleiðbeiningar

  • Tékklisti yfir áfallaeinkenni og áfallasögu

  • Að ná sér eftir áföll felur í sér…

  • Þolmörkin

  • Ósjálfráðu varnarviðbrögðin

  • Ósjálfráð varnarviðbrögð og þolmörk

  • Áfallaminning (“Endurupplifun”)

  • Áfallaminningar, ósjálfráðu varnarviðbrögðin og þolmörkin)

  • Geðtengsl [Attachment]

  • Geðtengslakerfið og ósjálfráðu varnarviðbrögðin

  • Tengslaáföll

  • Forðun (frábær aðferð til að lifa af)

  • Að skoða (ný aðferð)

  • Inngrip

  • Kynnstu pörtunum þínum

  • Fyrsta skref: Kortlagning

  • Annað skref: Hlúð að

  • Kortlagning á fleiri en einum parti í einu

  • Þolmörkin aukin

  • „Akkúrat rétti staðurinn”

  • Munurinn á ró og dofa

  • Munurinn á gleði og að vera hátt uppi

  • Heimildir

Höfundur bókarinnar, Rachel Walker, hefur gefið út frekara efni fyrir þolendur og meðferðaraðila sem sjá má inni á heimasíðu hennar Trauma Recovery Store

Panta Leiðarvísi fyrir meðferðaraðila

Með því að fylla út formið hér að neðan ertu að festa þér kaup á: Bati eftir áföll. Leiðarvísir fyrir meðferðaraðila.
Verð flettirits er kr. 18.500 og sendingarkostnaður er kr. 2000.
Þú færð reikning í heimabanka og kaup verða send þegar reikningur er greiddur.

Previous
Previous

Handbók um bata eftir áföll fyrir þolendur áfalla